• Ef rafmagnssnúran er skemmd, verður að fá nýja frá
framleiðanda, þjónustuaðila hans eða svipuðum
hæfum aðila til þess að koma í veg fyrir hættu.
• Áður en viðhald fer fram á tækinu skal slökkva á því og
aftengja aðalklóna frá rafmagnsinnstungunni.
• Ekki nota vatnsúða og gufu til að hreinsa
heimilistækið.
• Þvoðu tækið með rökum og mjúkum klút. Notið
aðeins mild þvottaefni. Ekki nota rispandi efni, stálull,
leysiefni eða málmhluti.
2. ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
2.1 Uppsetning
• Fjarlægðu umbúðirnar og
flutningsboltana.
• Geymdu flutningsboltana. Þegar þú
flytur heimilistækið aftur verður þú að
koma í veg fyrir að tromlan hreyfist.
• Farðu alltaf varlega þegar þú hreyfir
tækið af því að það er þungt. Alltaf
skal nota öryggishanska.
• Ekki setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
• Fylgdu leiðbeiningum um
uppsetningu sem fylgja með
heimilistækinu.
• Ekki setja upp eða nota heimilistæki
þar sem hitastigið er undir frostmarki
eða þar sem tækið er útsett fyrir veðri
og vindum.
• Gættu þess að gólfið þar sem tækið
er sett upp sé slétt, stöðugt, hitaþolið
og hreint.
• Gættu þess að það sé gott loftflæði á
milli heimilistækisins og gólfsins.
• Stilltu fæturna af svo að nauðsynlegt
bil sé á milli heimilistækisins og
teppisins.
• Ekki setja upp heimilistækið þar sem
ekki er hægt að opna hurðina til fulls.
2.2 Tenging við rafmagn
• Heimilistækið þarf að vera jarðtengt.
• Alltaf nota rétt uppsetta innstungu
sem gefur ekki raflost.
• Gætið þess að
rafmagnsupplýsingarnar á
tegundarspjaldinu passi við
aflgjafann. Ef ekki, skal hafa samband
við rafvirkja.
• Ekki nota fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
• Gætið þess að rafmagnsklóin og
snúran verði ekki fyrir skemmdum. Ef
skipta þarf um rafmagnssnúru verður
viðurkennt þjónustuver okkar að sjá
um það.
• Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
uppsetningarinnar. Gætið þess að
rafmagnsklóin sé aðgengileg eftir
uppsetningu.
• Ekki snerta rafmagnssnúruna eða
rafmagnsklóna með blautum höndum.
• Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr
sambandi. Takið alltaf um klóna.
• Einungis fyrir Bretland og Írland:
Tækið er með 13 ampera
rafmagnskló. Ef nauðsynlegt er að
skipta um öryggi í rafmagnsklónni skal
nota 13 ampera ASTA (BS 1362)
öryggi.
• Þetta heimilistæki samræmist EBE-
tilskipunum.
2.3 Tenging við vatn
• Passið að vatnsslöngurnar verði ekki
fyrir skemmdum.
• Áður en heimilistækið er tengt við
nýjar lagnir eða pípulagnir sem hafa
ekki verið notaðar í langan tíma, skal
láta vatnið renna þangað til það er
hreint.
www.aeg.com
4
Komentáře k této Příručce