
9
Fyrir fyrstu þurrkun
Til að losna við efni sem hugsanlega kunna að sitja í vélinni eftir
frágang hennar frá verksmiðju skal þurrka af tromlunni með rökum klút
eða setja af stað stutta þurrkun (30 MÍN) með rökum klútum.
Flokkun og undirbúningur þvottar
Flokkun þvottar
• Flokkið þvottinn eftir efni hans:
– Bómull/hör fyrir þurrkkerfin BÓMULL.
– Blönduð efni og gerviefni fyrir þurrkkerfin STRAUFRÍTT.
• Flokkið eftir þvottamerkjum. Þýðing þvottamerkjanna:
• Ekki þurrka ný efni í sterkum litum ásamt ljósum þvottaplöggum.
Liturinn gæti smitast.
• Ekki þurrka prjóna- og vefnaðarvöru með þurrkkerfinu MJÖG ÞURRT.
Hætta á að þvottur hlaupi!
• Ekki þurrka ull í þurrkaranum. Hætta á flækju! Eftir að ullarflíkur hafa
legið til þerris má meðhöndla þær með kerfinu ULL.
Undirbúningur þvottar
• Til að þvottur hnyklist ekki saman: Rennið upp rennilásum, hneppið
upp fóðri, bindið saman laus bönd (t.d. svuntubönd).
• Tæmið vasa. Fjarlægið málmhluti (bréfaklemmur, öryggisnælur, ...).
• Snúið fóðri út þar sem það á við (t.d. á úlpum með bómullarfóðri).
Þannig þorna þessar flíkur betur.
n m l k
Yfirleitt hægt að þurrka
í þurrkara
Þurrkun við
venjulegan
hita
Þurrkun við
lækkaðan hita (ýtið á
hnappinn MJÖG
VIÐKÆMT!)
Ekki leyfilegt að
þurrka í þurrkara
Komentáře k této Příručce